Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Utankjörfundur

Utankjörfundur í fullum gangi - Kosið í Reykjavík í Laugardalshöll kl. 10.00 - 22.00 alla daga.

Minni á utankjörfundarkosningu - þið sem ekki eruð eða verðið heima þ.e. þar sem þið eigið lögheimili.

Kosning utankjörfundar fer fram hjá sýslumönnum, hjá hreppstjórum erlendis, skipum, sjúkrahúsum, fangelsum, dvalar- og vistheimilum og í heimahúsi. Kjósandi stimplar eða ritar á kjörseðilinn bókstaf þess lista sem hann vill kjósa. Listabókstafur Vinstri grænna um land allt er V. Á það skal bent, að nauðsynlegt er að hafa með sér skilríki þegar kosið er.

Kosning í Reykjavík í Laugardalshöll kl. 10.00 – 22.00 alla daga.

Kjósandi sem greiðir atkvæði utan þess kjördæmis sem hann er á kjörskrá skal sjálfur annast og kosta sendingu atkvæðisbréfs síns. Skrifstofa VG á Grensásvegi sér um koma atkvæðum til skila og má hafa samband við 
hana í síma 534-0996 og í síma hjá starfsmanni utankjörfundar 617-8324. Einnig má hringja á skrifstfofuna til að fá upplýsingar um hvort að viðkomandi sé á kjörskrá. Frekari upplýsingar um utankjörfund er hægt að finna með því að smella
hér


Vinstra grænt vor - hvað annað

Það er ekki hægt annað en að gleðjast þessa dagana því ekkert lát er á fylgisaukningu Vinstri grænna. Ég get ekki annað en glaðst yfir fylgistapi Framsóknar í Suðvestur og reyndar almennt enda kemur það okkur til góða.
mbl.is Framsóknarflokkur tapar fylgi í Suðvesturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laun og laun

Á forsíðu Mbl í dag er sagt frá 66 milljarða hagnaði hins búlgarska símafyrirtækis Björgólfs og sölu á hans hlut og fleiri.

Þetta eru frekar geggjaðar tölur að verða sem settar eru á borð fyrir okkur almenning dag hvern og fannst mér það skjóta skökku við á baráttudegi launafólks þegar kynntur var starfslokasamningur Bjarna Ármannssonar.

Maður veltir fyrir sér af hverju bankar hagnast með þessum hætti og hver það er sem býr þennan hagnað til. Ætli bankastjórarnir geri það alfarið sjálfir? Launamunurinn í Glitni sem og öðrum bönkum er örugglega mikill og tel ég að hinn almenni starfsmaður Glitnis hafi ekki verið sæll með sitt þegar tölurnar í starfslokasamningnum voru kynntir.


Bandýmót

Hér í Ólafsfirði er árlega haldið bandýmót og var það áttunda haldið nú um helgina. Liðin voru 18 og stemmingin aldrei meiri. Við hjónin kepptum fyrir tvö lið, Höllina, skólann og sparisjóðinn. En vegna velgengni Hallarinnar þá tókst okkur ekki að spila nema einn leik með skólanum og sparisjóðnum.

Höllin kom sá og sigraði - lentum að vísu í öðru sæti en vorum fram til þess leiks eina ósigraða liðið. Það var nefnilega þannig að dregið var inn eitt taplið eftir hvern riðil og liðið sem vann var í raun slegið út í fyrsta leik. En við vorum ánægð með okkur og árangurinn góður í fyrsta sinn sem Höllin tekur þátt - enda ungt fyrirtæki.Smile

Klara Mist var valin besti leikmaðurinn og Höllin bestu nýliðarnir. Ekki amalegt það.

Picture 013

Stemmingin var alveg rosaleg og er þetta eins og karnival. Mikið er lagt uppúr búningum og því hvernig liðin kynna sig þegar í íþróttahúsið er komið. Þetta er svona eitt af því sem ekki er hægt að lýsa með orðum heldur þarf að upplifa.Wink

Picture 041

 

Eins og sjá má vorum við Hallarfólk dressuð úr teiknimyndinni Aladin og sá Addý mágkona um búningagerð og Jói tengdapabbi um smíði á prinsessupallinum sem Klara Mist hvíldi á. Þeir félagar, Helgi, Jóhann Heiðar, Lúðvík, Davíð og Jasmin sáu um að bera hana í íþróttamiðstöðina.

Hvet ykkur til að skoða fleiri myndir á http://olafsfjordur.is/myndir/2007/bandy07/index.htm


Ungt fólk kýs

Hvet allt ungt fólk til að nýta sér þennan fund og láta í sér heyra með fyrirspurnir.

19200

Ungt fólk kýs 

Tími: Laugardaginn 28. apríl kl. 16-18 (húsið opnar 15:30)
Staður: Tjarnarbíó

Fundarstjórar: Halla Gunnarsdóttir og Sölvi Tryggvason  

SFR – stéttarfélag, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Hitt húsið bjóða ungu fólki á hitting í tilefni kosninga.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Fólk undir 25 ára er þó sérstaklega velkomið. 

Fundurinn verður sendur beint út á netinu stundvíslega kl. 16:00 á slóðinnihttp://straumur.nyherji.is/rvk.asp 

Fólk fær að spyrja úr sal en einnig er kvatt til að senda spurningar til frambjóðenda bæði fyrir fund og á meðan honum stendur á netfangið:  ungtfolkkys@gmail.com 

Fulltrúar flokkanna eru:Ágúst Ólafur Ágústsson frá Samfylkingunni 

Birgir Ármannsson frá Sjálfstæðisflokknum

Guðjón Ólafur Jónsson frá Framsóknarflokknum

Katrín Jakobsdóttir frá Vinstri grænum

Margrét Sverrisdóttir frá Íslandshreyfingunni

Valdimar Leó Friðriksson frá Frjálslynda flokknum

Ekki er vitað hver kemur frá Baráttusamtökum eldri borgara og öryrkja                                                                                      


Bæjarstjórnarfundur

Var á bæjarstjórnarfundi vestan megin í Fjallabyggð, Siglufirði, í gær. Það lá í sjálfu sér ekki mikið fyrir fundinum en sitthvað þó. Ég var t.d. ekki ánægð með að leyfilegt sé að setja 18m2 "hús" í garð á lóðamörkum nánast. Á sama tíma var verið að leyfa viðbyggingu við íbúðarhús sem var rúmir 14m2 og ber þá gjöld sem slíkt.

Nú svo voru fasteignagjöldin loksins að berast til fólks í Fjallabyggð en þó hafi ekki allir fengið álagningarseðilinn enn.  Mér finnst frekar handahófskennt hvernig staðið var að álagningunni en t.d. hækkaði holræsagjaldið um 45% á milli ára í Ólafsfirði. Það var hærra á Siglufirði og var pólitísk ákvörðun um að hafa það bara þannig í stað þess að fara einhvern milliveg. Fyrir svo utan það að samið var við Sýslumann og færði Fjallabyggð því hinu opinbera verkefni en er sífellt að leita sjálft eftir slíkum verkefnum A-gíró seðla sem eru úreltir þeim sem nýta sér t.d. greiðsluþjónustu eða visadreifingu.Frown

Eftir fund kynnti svo Sigurður Tómas Björgvinsson skýrslu sem hann var beðinn að gera og tillögur að framtíðarstjórnskipulagi í Fjallabyggð. Honum var ætlað að búa til ramma að starfslýsingum í samráði við þróunarstjóra Fjallabyggðar. Málið er enn í trúnaðarfarvegi og því lítið hægt að segja um það hér en fólk skiptist á skoðunum og er það fínt. Þetta hefði átt að vera löngu búið að mínu mati þar sem til var skýrsla frá RHA og hefði verið hægt að dema sér í þetta strax.

En veður var gott og við vorum komin heim í austurbæinn um kl. 21 í gærkveldi.

 


VG enn í sókn

Það er gott að sjá að Vinstri græn eru komin með kjördæmakjörna þingmenn en fréttin gengur út frá því að við séum einungis með 1 þingmann. Það er ekki rétt því Þuríður Backman var uppbótarþingmaður en skoðanakannanir eru ýmist settar fram með þeim eða án þegar miðað er við fyrri kosningar.

Við þurfum hins vegar að tæta svolítið meira af Sjöllunum og Famsókn ekki síður en Íslandshreyfingunni sem enn mælist ekki með mann inni og fær flest sitt fylgi líklega frá VG.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur og VG bæta við sig í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andrésarleikarnir á skíðum

P4160003

Má til með að monta mig svolítið af því að snúllan mín hún Jódís Jana var að taka þátt í Andrésar andar leikunum í fyrsta skiptið og var svakalega glöð og ánægð með sig.

  

P4160007P4180025

Einbeitt leggur sú stutta af stað. Og tekur svo við viðurkenningu fyrir afrekið í dag.

 


Kosningahappdrætti VG - ómótstæðilegir vinningar

Má til með að segja ykkur frá hreint frábæru happadrætti sem við Vinstri græn erum með.  

Hið sívinsæla kosningahappdrætti Vinstri grænna er nú til sölu á kosningaskrifstofum og hjá frambjóðendum. Meðal vinninga er kvöldstund við taflborðið með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, golfkylfur mundaðar með Atla Gíslasyni, myndverk eftir Mireyu Samper, sjóstangaveiði með Birni Vali, á vettvangi glæps með Katrínu Jakobsdóttur ofl. ofl. Miðinn kostar 1.000 krónur.

1. Góða veislu gjöra skal ...: Ingi Rafn Hauksson veitingastjóri kennir galdurinn að baki hinu fullkomna matarboði. Fyrir fimm. 35.000 kr.

2. Betri er einn fugl í sigti ...: Siglt út á Faxaflóa til svartfuglsveiða með Sigurmari K. Albertssyni hrl. Afli fylgir í neytendaumbúðum, ásamt leyniuppskrift. Fyrir þrjá. 55.000 kr.

3. Fögur er hlíðin ...: Gisting og morgunverður í Smáratúni í Fljótshlíð í boði Arndísar S. Sigurðardóttur. Fyrir tvo. 13.000 kr.

4. Sigling um Breiðamerkurlón ...: undir leiðsögn Kristínar G. Gestsdóttur. Nesti á leiðinni. Fyrir fjóra. 30.000 kr.

5. Skák og ...: Kvöldstund við taflborðið með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Manngangur kenndur, ef þarf. Léttar, hjartastyrkjandi veitingar. 50.000 kr.

6. Skrúðsbóndinn sóttur heim ...: Skoðunarferð í Skrúð, úti fyrir Fáskrúðsfirði, í boði Magnúsar Stefánssonar. Nesti á leiðinni. Fyrir fimm. 45.000 kr.

7. Höll sumarlandsins ...: Atli Gíslason býður í Gryfjuna sína í Grímsnesinu. Gengið um grundir, golfkylfur mundaðar og grill. Fyrir átta. 50.000 kr.

8. Handgerðar ljóðalistaverkabækur eftir Birgittu Jónsdóttur. Tíu bóka sería í sérútgáfu fyrir happdrættið. 50.000 kr.

9. Upp með skóna ...: Dagsferð með Ingólfi Á. Jóhannessyni. Gengið um Suðurárbotna. Nesti og veitingar í göngulok. Fyrir fjóra. 45.000 kr.

10. Myndverk eftir Mireyu Samper. 270.000 kr.

11. Að lífið sé skjálfandi ...: Svarfaðardalur sóttur heim í boði Ingibjargar Hjartardóttur og Ragnars Stefánssonar. Kvöldverður að svarfdælskum hætti. Gisting. Fyrir fimm. 75.000 kr.

12. Um Eyjar og sund ...: Lystisigling við Vestmannaeyjar, um víkur og hella með Ragnari Óskarssyni. Léttar veitingar á leiðinni. Fyrir tvo. 20.000 kr.

13. Björn Valur Gíslason býður í sjóstangaveiði frá Ólafsfirði. Roðlaust og beinlaust grillað í ferðalok. Reiki og orku-punkta-jöfnun að hætti húsráðenda. Fyrir fimm. 75.000 kr.

14. Hver á sér fegra fjallalamb ...: Óvissuferð um N-Þingeyjarsýslu með Stefáni Rögnvaldssyni bónda. Nesti og alnorðlensk hangikjötsveisla í lokin. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

15. Pandóruboxin opnuð ...: Bragi Kristjónsson býður til sögustundar í Bókinni ehf. – fornbókaverslun. 50.000 kr.

16. Gengið á gúmmískóm ...: Sagnaferð um Lakagíga með Kára Kristjánssyni landverði. Nesti á leiðinni. Fyrir tíu. 100.000 kr.

17. Í upphafi var orðið ...: Hlynur Hallsson spreyjar vel valin slagorð á vegg. 100.000 kr.

18. Enn finnst fljót og ef til vill ormur ...: Óvissuferð um Fljótsdalshérað með Þuríði Backman. Krásir að hætti heimamanna. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

19. Fröken Reykjavík ...: Óræðar slóðir miðborgarinnar þræddar með Birnu Þórðardóttur. Hressing á leiðinni og besta lasagne norðan Modena í lokin! Fyrir sex. 60.000 kr.

20. Sú rödd var svo fögur ...: Upptaka á uppáhaldslaginu inn á geisladisk. Heiða (Ragnheiður Eiríksdóttir) og Elvar Sævarsson stjórna upptöku og spila undir. Keflvískar kaffiveitingar. 30.000 kr.

21. Siðfræðinámskeið í boði Jóhanns Björnssonar heimspekings. Léttar, spaklegar veitingar í lokin. Fyrir tíu. 50.000 kr.

22. Ári minn og kári ...:  Þór Vigfússon og Hildur Hákonardóttir bjóða á draugaslóðir í Flóanum. Draugasetrið á Stokkseyri sótt heim. Fyrir fimmtán. 67.500 kr.

23. Helgardvöl fyrir fjölskyldu í gestahúsi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Frjáls afnot af hestum, fiskibáti og öðrum afþreyingarmöguleikum, þar með talinn fjallajeppi. Í boði Steingríms J. Sigfússonar og ábúenda. 75.000 kr.

24. Um blíðan Borgarfjörð ...:  Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir býður í sumarhús sitt í Reykholtsdal. Gönguferð um Hallmundarhraun og fossbúar sóttir heim. Grillveisla í lokin. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

25. Vængjasláttur í upphæðum ...: Sagnastund með Einari Má Guðmundssyni rithöfundi. 50.000 kr.

26. Í sátt við skattmann ...: Drífa Snædal gengur frá skattframtölum fimm einstaklinga. 60.000 kr.

27. Gisting í Flatey á Breiðafirði fyrir fjölskyldu í boði Álfheiðar Ingadóttur. Kvöld- og morgunverður að Vegamótum. 65.000 kr.

28. Viðfjarðarundur og önnur austfirsk ...: Skemmtisigling frá Norðfirði með Árna Steinari Jóhannssyni og Sigríði Stefánsdóttur. Svínasteik að dönskuskotnum hætti. Gisting. Fyrir fimm. 75.000 kr.

29. Heim að Hólum ...: Dagsferð í boði Jóns Bjarnasonar á slóðir biskupa og bændahöfðingja. Köldverður að hætti Hólamanna, með ívafi frá Ströndum. Fyrir fimm. 75.000 kr.

30. Handhægur heimilisiðnaður ...: Steinunn Þóra Árnadóttir og Stefán Pálsson kenna undirstöðu barmmerkjagerðar. Eitt hundrað merki fylgja, með áletrun eða mynd að eigin vali. Kaffi og meðlæti. Fyrir fimm. 20.000 kr.

31. Á vettvangi glæps ...: Katrín Jakobsdóttir leiðir gesti um refilstigu Reykjavíkur. Veitingar að hætti háskakvenda. Fyrir átta. 50.000 kr.

32. Hott, hott ...: Hestaferð um Eyrarbakkafjörur með Ölmu Lísu Jóhannsdóttur. Óvæntar uppákomur og grillað í lokin. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

33. Hvað er svo glatt ...: Grillveisla með öllu tilheyrandi í garðinum hjá Ögmundi Jónassyni, margrómuðum meistara grillsins. Fyrir átta. 50.000 kr.

34. Dansi, dansi dúkkan mín ...: Gleðistund með dídsjey Andreu J. 75.000 kr

 


Sumardagurinn fyrsti

Ég hef nú einungis bloggað hér um pólitík og haldið úti annarri síðu þar sem ég blaðra um daginn og veginn en breyti út af í dag og set þessa færslu hér líka. Það er svo umhugsunarvert hvort maður á að halda úti mörgum síðum. Rökin eru þó þau að mér hefur þótt gott að aðskilja hið "pólitíska líf" og fjölskylduna en svo má segja að lífið sé tóm pólitík hvernig sem á það er litið.

En annars - dásamlegur dagur í dag. Ljúfar sumarkveðjur til ykkar lesenda.

Sumarið fagnar okkur með sól og blíðu hér heima og líka í Hlíðarfjalli þar sem við hvöttum snúruna okkar til dáða. Hún stóð sig vel þrátt fyrir að ætla að hætta við í nokkur skipti þennan klukkutíma sem hún beið þar til hún var ræst út í braut.0

En sú stutta hafði sig í gegnum göngubrautina og datt bara einu sinni í lokabeygjunni og var svakalega ánægð þegar hún kom í mark.0

Við fórum á Glerártorg í snarl og síðar ætluðum við að fá okkur kaffi og  með því í Vín en þar var ekkert að hafa í tertum. Það dugar nú ekki fyrir þessa fjölskyldu og því var haldið í Kaffi rós og má segja að þar hafi verið úr fáu að velja líka. Við létum okkur þó hafa það og síðan fóru þær systur í sund. Við litum við hjá Gúlgu og Boga á meðan.

Héldum svo af stað heim á leið enda vinna í fyrramálið hjá okkur og svo er bara að bruna aftur inneftir og sjá hana á morgun.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband