Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Vetrarfrí búið

Þá er vetrarfríið búið og hið hversdagslega tekið við aftur. Vetur konungur hefur líka minnt á sig en nú er úti snjókoma og nokkur gjóla. GetLost Ekki eitthvað fyrir mig.

Annars náði ég ekki að klára íbúðina mömmu í gær og er hreinlega sprungin eftir daginn í dag enda gekk mér illa að sofna síðast liðna nótt og því ljóst að ég halla mér í fyrra fallinu í kvöld.

Er að undirbúa hópverkefni um hafið fyrir bekkinn minn sem ég vona að þau vinni vel og af samviskusemi. Gæti orðið nokkuð skemmtilegt og flott ef þau leggja sig fram í framsetningu.

Nú þarf ég hins vegar að huga að mínum eigin lærdómi þar sem ég hef ekki kíkt í skruddurnar frá því í byrjun október og staðlota í næstu viku. Blush Ekki gott til afspurnar og ljóst að mikil vinna er framundan hjá mér að lesa upp og hlusta á fyrirlestra.

Hef þessi fleygu orð sem hér fara á eftir í huga á næstunni.

If we always do what we’ve always done,
we’ll always get what we’ve always got
                                  
                                                        Óþekktur höfundur

Að pakka niður

Hef verið undanfarna daga að pakka niður búslóðinni hennar mömmu þar sem hún er búin að selja íbúðina sína. Það kennir margra grasa ef svo má að orði komast enda konan mikill "drasl safnari" eins og maðurinn minn segir um mig.

Hún mamma á svo mikið af handavinnublöðum að hægt væri að setja upp verslun með gömlum blöðum og dóti því tengdu. En ég vonast til að klára þetta í dag og fara í þrifin á morgun enda vetrarfríið mitt í skólanum þá búið og tími kominn á afhendingu.

En ég rakst meðal annars á ljóð eftir Ásgeir bróðir frá því hann var lítill polli og sagði honum í gær að ég myndi skella því á bloggið.

Þegar pabbi fór á bát

þá var mamma alveg mát.

Báturinn hét Súlan

þá var mamma hrædd við Múlann.

Önnur

Leiftur er best

og aldrei í fjórðu deildina sest

oft fá þeir góðan gest

en þurfa aldrei að nota hest.

Svona er nú hluti af hinum fína kveðskap litla bróður míns. Veit ekki hvað hann var gamall en hann kannski man það.

 


Sannkölluð fundarvika

Það er ekki ofsögum sagt að þessi vika er fundarvika hjá mér. Byrjaði á mánudaginn með fundi um námsmat með félögum mínum í skólanum, síðan var haldið á Sigló á þriðjudaginn strax eftir kennslu kl. 16 á bæjarstjórnarfund sem lauk ekki fyrr en kl. 21:30.

Þar samþykkti meirihlutinn m.a. að hækka gjaldskrá tónskólans sem var þó hækkuð í fyrra. Nú það er líka búið að fresta því að taka upp skólamáltíðir hérna megin í Fjallabyggð en á að reyna Siglufjarðarmegin. Ekkert klárt um hvernig eigi að hátta þessu í Ólafsfirði yfirleitt.

Hið ánægjulega er að nú fer að hefjast íslenskukennsla fyrir útlendinga, hér í austurbænum, sem eru eins og áður hefur komið fram hjá mér orðnir þónokkuð margir hér í Ólafsfirði.

Frá fundinum í Tjarnarborg Mynd af íbúafundinum í Ólafsfirði.

Eftir bæjarstjórnarfundinn var Alta með niðurstöður úr íbúafundunum og var ánægjulegt að sjá hve fólk er bjartsýnt og tilbúið til að vinna að framgangi bæjarins. Skýrsluna verður hægt að lesa á www.fjallabyggd.is vonandi fljótlega og síðan má nálgast hana á skrifstofum sveitarfélagsins. 

Í gær var svo vinnufundur í skólanum og í dag var ég á fundi sjálfsmatsteymis skólans.

Þar næst fór ég svo á fund í bæjarráði kl. 16:15 sem lauk kl. 19:40. Ýmislegt var þar á dagskrá s.s. endurskoðun fjárhagsáætlunar, málefni hestamanna sem ég er ekki allskostar sátt við hvernig gengið hafa fyrir sig. Nú Vignir verður eftirlitsaðili vegna Héðinsfjarðargangna fyrir hönd bæjarins þar sem bæjartæknifræðingurinn er hættur störfum. Samningur við slökkviliðsstjóra sveitarfélagsins var samþykktur sem og álagningarforsendur næsta árs.

Um helgina er svo Hallarvinna auk annars sem maður tekur sér fyrir hendur.


Frábær matur og skemmtun í Tjarnarborg

Var að koma heim ásamt Jódísi Jönu eftir að hafa notið góðs matar, söngs og spils sem fólk af erlendum uppruna búsett í Ólafsfirði bauð okkur upp á ásamt deild Rauða krossins hér í firðinum eins og ég hef áður sagt.

Reglulega gaman að sjá allt þetta fólk og mæting annarra Ólafsfirðinga var frábær, fullt hús og þurfti að bæta við borðum. Tek undir orð séra Sigríðar Mundu þegar hún vonaði að þetta yrði bara byrjunin á góðum samskiptum allra sem hér byggju.

Tók nokkrar myndir en myndskilyrðin í Tjarnarborg eru ekki góð.

 


Mörg afmæli

Hér í Ólafsfirði hefur ríkt einmuna veðurblíða síðustu daga, hitinn um 17°og sólin skinið. Í dag er hins vegar frekar rakt og hitinn 7°enn sem komið er.

Ýmislegt hefur gerst undanfarna daga hjá mér og mínum. Ég seldi íbúðina mömmu og fyrirliggjandi hjá mér að pakka niður dótinu hennar og koma því í geymslu. Ásgeir bróðir var hér og ekki um helgina. Hann var í gæsaveiði með Andra í Skagafirði og kom aðeins á fimmtudaginn til að svíða og reykja það sem veiðst hafði og gisti svo. Við fórum til mömmu ásamt Klöru Mist sem kom á miðvikudaginn.

Klara Mist varð sem sagt tvítug á fimmtudaginn 11. október og ómægod hvað við eigum fallega og heilbrigða stelpu. GrinHeart Við ákváðum að fara með hana og systur hennar, Jódísi Jönu út að borða í gærkveldi og varð Strikið fyrir valinu. Fengum þar fínan mat og fórum síðan heim og slökuðum í pottinum. Í dag er svo kaffiboð fyrir stórfjölskylduna.

Rauði krossin, Ólafsfjarðardeildin, býður gestum og gangandi að skoða sjúkrabílinn og skyndihjálparbúnað í dag í tilefni af kynningarviku. Einnig á Hornbrekka, dvalarheimilið, 25 ára afmæli og eru kaffi og kökur þar í boði. Á miðvikudaginn stendur svo Rauði krossinn fyrir opnu húsi í Tjarnarborg þar sem íbúar af erlendum uppruna kynna land sitt og þjóð.

Það vill svo skemmtilega til að nemendur í 3. bekk, þar sem Jódís mín er, fengu verkefni þessu tengt og enn skemmtilegra er að umsjónakennarinn þeirra óskaði eftir því við mig að mínir nemendur í 7. - 8. bekk aðstoðuðu þau við vinnuna. Það gerðum við og má sjá myndir af því á heimasíðu Grunnskólans. http://barnaskoli.olafsfjordur.is undir myndasíðuhnappnum.


Góður stuðningur

Hlýtur að teljast ágætt veganesti fyrir Vg og samfó að fá þessa niðurstöðu þrátt fyrir ða hún segi auðvitað litla sögu í sjálfu sér eins og allar skoðanakannanir. Þetta er þrátt fyrir allt meiri stuðningur en fyrrverandi meirihluti fékk í kosningunum sem var rétt um 49%.

Tel ekki vafa leika á því að Svandís heldur áfram að vinna samkvæmt sinni sterku sannfæringu í orkumálunum sem og öðrum og vona bara að hún nái fram sem flestum áherslum VG í gegnum þetta samstarf.


mbl.is Nýr meirihluti nýtur stuðnings 56,5% borgarbúa samkvæmt könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyþing og sitthvað fleira

Jæja langt um liðið síðan síðast enda að vanda mikið um að vera hjá mér og mínum.

Hef verið í hinum ýmsu verkum og nú síðast á aðalfundi Eyþings sem haldinn var á Raufarhöfn. Ég sat slíkan fund í fyrsta skipti og fannst margt áhugavert sem þar kom fram. Smári Geirsson var með athyglisverðan fyrirlestur um ESB og sveitarstjórnarmál og sýndist mér margt koma hinum misreyndu sveitarstjórnarmönnum á óvart. Hann tók fyrir í restina einn fund hjá byggðaráði Norður-Þing og sýndi svart á hvítu tengslin.

Nú Valdimar, heilbrigðisfulltrúi fór ásamt Þóru Ákadóttur yfir starfsemi Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar og var með sláandi tölur um örverumyndun í mat sem og margt annað áhugavert.

Við lentum í ferlegu veðri á leiðinni heim 18 m. á sek. þegar við fórum fyrir Tjörnesið og skafrenningur. Veðrið var leiðinlegt alveg til Húsavíkur krapi og þessháttar sem betur fer vorum við á vel útbúnum bíl. Á Húsavík var nánast allt rafmagnslaust, Shell sjoppan, Heilbrigðisstofnunin og löggan höfðu rafmagn og sagði okkur starfsstúlka í sjoppunni, sem er pínu lítil, að þær væru búnar að selja yfir 1000 pylsur þann daginn.

Ég fór snemma í háttinn í gær enda vöknuð kl. 6 bæði á föstudagsmorgun og laugardagsmorgun, svaf eins og engill fram undir kl. 8 í morgun. Fór með hundana mína í göngu fram sveitina í dýrlegu veðri en ég vil gjarnan sjá snjóinn hverfa - er ekki tilbúin í hann ennþá.

PA040004

                           PA040007

         Indý og Mirra                                                                   Sunna

Seinnipartinn var svo stjórnarfundur hjá Slysó og síðan fór ég í kirkjuna á tónleika hjá Kirkjukórnum. Þau ætluðu að vera á Sigló í dag en því var aflýst þar sem Lágheiðin var ófær fram eftir degi að mér skilst.

Glápti á fínan þátt með Glenn Close áðan og nú er kominn tími á pottinn fyrir háttinn.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband