Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Fjöltækniskóli Íslands

Nefnd um stofnun framhaldsskóla í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð fundaði í morgun ásamt skólastjóra Fjöltækniskóla Íslands. Fyrirlesturinn var mjög áhugaverður og snérist ekki síður um það sem áður var nefnt stytting stúdentspróf. Ekki snýst málið lengur um það heldur að hver hefur sinn tíma samkvæmt þessum tillögum, sem mér skilst að ráðherra menntamála hafi nú þegar gert að sínum, heldur að verknám sé metið til jafns á við bóknám þegar kemur að stúdentsprófi.
Mér sýnist að fyrirkomulag þessa skóla geti að mörgu leiti gengið hér í okkar skóla þ.e. grunnhugmyndin. Borgarbyggð er að koma sínum skóla á laggirnar út frá sambærilegri hugsun og verður fínt fyrir okkur að horfa til þess. Spurning hvort Sparisjóður Mýrarsýslu verður eins örlátur við okkur og hann var við þennan skóla.Wink

Margt af því sem þarna kom fram er auðveldlega hægt að yfirfæra í grunnskólann, svo sem eins og gæðakerfið sem ég var mjög hrifin af, og vona ég að það verði svo í nánustu framtíð.


Kærkominn frídagur

Kærkominn frídagur hjá mér í dag eftir strembna helgi. Var að vinna síðustu tvær nætur og var mikið fjör sérstaklega í nótt. 0 Maður er orðinn allt of gamall í þetta svei mér þá. 0 Dögginni var ekki fyrir að fara í  mínum garði eða "fjallshlíðinni hér í bakgarðinum" hjá mér þegar ég kom heim undir morgun og því varð ekkert úr nöktum veltingi. Göngutúr í náttúrunni með hundana mína verður hin andlega hreinsun - eins og oft áður.

Eve fer í dag til Akureyrar og styttist óðum í heimferð til hennar Ameríku. Hún fer af landi brott 8. júlí og munum við sakna hennar mikið. 0 Hún var svo heppin að sjá hér fallega sólarupprás aðfararnótt laugardags en Helgi fór með hana út í Múla eftir að ég var búin á barvaktinni. Hún eins og aðrir útlendingar er alveg heilluð af birtunni sem hér ríkir allan sólahringinn og vill helst ekki sofa þegar næturkyrrðin er svo mikil eins og verið hefur undanfarið.

Á planinu í dag er að kíkja aðeins í garðinn og slæpast svolítið - nenni hreinlega ekki að gera nokkurn skapaðan hlut.


Döggin

Þá er bara að velta sér uppúr Jónsmessudögginni - nakin að sjálfsögðu. Hreinsar líkama og sál.
mbl.is Jónsmessa haldin hátíðleg víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

19. júní - jafnréttisdagur - allir með

Í dag eru liðin 92 ár frá því að konur fengu fyrst kosningarétt, eða árið 1915 og nokkru síðar eða 1922 var fyrsta konan kosin á þing.

Í dag 19. júní fögnum við þessu og höldum áfram að vinna að jafnrétti, konur jafnt sem karlar, og berum eitthvað bleikt í tilefni dagsins. Ef ekki er til eitthvað bleikt til að vera í má alltaf setja eitthvað bleikt í t.d. gluggann eða sent tölvupóst í bleiku. Grin Það er alltaf hægt að kaupa sér bleikt blað og gera eitthvað úr því, kostar lítið en getur verið áhrifaríkt tala nú ekki um ef eitthvað skemmtilegt er á það skrifað.

Aðalatriðið er að vera með og muna að langt er í land ennþá þó margt hafi unnist. Við viljum að dætur okkar njóti sambærilegra kjara fyrir sömu menntun strax en ekki að það launabil haldist sem nú er. Þetta er bara einn af mörgum þáttum ójafnréttis sem enn ríkir.

Kíkið á myndbandið. Ég kann ekki að setja það inn á eftir að gefa mér tíma í að læra það. http://youtube.com/watch?v=VAtPqC8Evpg


Bæjarstjórnarfundur

Það var bæjarstjórnarfundur á Sigló í gær og var byggðakvótinn helsta umræðuefnið. Minnihlutinn ekki sáttur við vinnubrögð meirihlutans um hvernig honum skuli úthlutað. Ráðuneytið er með málið til umfjöllunar.

Formaður fræðslunefndar upplýsti að skólamáltíðir yrðu boðnar í grunnskólum Fjallabyggðar eftir áramótin þar sem ekki væri gert ráð fyrir þeim á þessu fjárhagsári. Gott mál að þetta skuli verða þó ég hefði alveg viljað sjá þetta eins og margt annað vera vísað til endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar.

Nú svo vantaði reglugerð með fræðslunefndarfundargerðinni auk þess sem ég get ekki fellt mig við það að skerða eigi vistunarmöguleika með því að ekki sé hægt að setja barn á leikskólann eftir hádegi heldur þarf vistun alltaf að byrja fyrir hádegi. Þetta er keypt þjónusta og spurning fyrir hvern hún er.

Nú ég var kjörin í bæjarráð í stað Villu og þýðir það enn frekari fundarhöld og enn meiri ábyrgð. Hlakka til að takast á við það verkefni.

http://www.olafsfjordur.is/fundir/fundir.asp?fundur=34&id=1023

Stutt í næsta bæjarstjórnarfund þar sem ársreikningar Fjallabyggðar verða lagðir fram og ræddir með vonandi viku millibili. Það verður fróðlegur lestur.


Ójöfnuður hvað?

Svo halda menn því fram að vaxandi ójöfnuður sé ekki staðreynd. Kommon nú er mál að opna augun.
mbl.is Dýrasta íbúðin á 230 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margur vill fara stutta leið

Já það eru margir sem vilja fara "styttri" leiðina í náminu. Heyrst hefur að einhverjir Íslendingar hafi "keypt" sér háskólagráðu erlendis og flaggi henni. Nú á tímum náms í gegnum netið virðist sem síður sé efast um gráðurnar sem verið er að ná sér í.

Það hlýtur að vera hægt að birta "svartan lista" um þessa háskóla sem gera slíkt og svo þá sem einfaldlega eru ekki til. Annað eins gengur nú í netheimum.


mbl.is Spilling sögð eyðileggja menntastofnanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytt bak

Ég veit að Jóhanna hefur breytt bak í pólitíkinni og vona að henni takist að halda Íbúðalánasjóði frá einkavinavæðingunni sem tröllriðið hefur íslenskri pólitík undanfarin ár.
mbl.is Félagsmálaráðherra: Íbúðalánasjóður verður ekki einkavæddur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband