Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Góður göngutúr

Fórum fjölskyldan í ljómandi góðan göngutúr fram að ármótum en það er leiðin sem farin er þegar farið er Fossabrekkur og Rauðskörð yfir í Héðinsfjörð.

Tíkurnar léku á alls oddi enda frábært veður og skemmtileg gönguleið fyrir menn og hunda.

Tókum einungis með okkur vídeóvélina, því miður, og því engar myndir á netið úr þessari ferð.

En nú á að baka vöfflur og halda áfram að njóta veðurblíðunnar á pallinum fram að vinnu.

Í bili......


Hvað er að gerast í Fjallabyggð?

Mikið er skrafað á götum bæjarins og líkast til víða annars staðar um málefni sveitarfélagsins. Flestum sem ég heyri í þykir lítið um framkvæmdir a.m.k. Ólafsfjarðarmegin. Þetta hefur borist bæjarstjóra til eyrna og sá hann ástæðu til að skrifa bréf á heimasíðu sveitarfélagsins til að árétta hver verkefnastaða sveitarfélagsins væri. 

 

Ég hvet ykkur til að lesa yfir bréfið það er ekki langt og sýnir að flest af því sem á að gera í Ólafsfirði gerist síðar á árinu ef frá er talinn leikskólinn, bæjarskrifstofurnar og nú vonandi verður skólamötuneytið tilbúið á réttum tíma. Það þótti hins vegar forgangsmál að laga veginn fram að Auðnum sem kostaði 1.500.000 en ekki mátti eyða 400.000 í að laga innkomuna í bæinn sem Árni Helga bauðst til að gera áður en hann fór með tækin, sem hann notaði í Mararbyggðinni, úr bænum. Nú er talið að þessi framkvæmd kosti mun meira líklega 1.200.000 eins og kom fram í máli formanns skipulags- og umhverfisnefndar á bæjarstjórnarfundi í júní. 

 

Hraðahindranir voru samþykktar 2006 og er enn ekki farið að bóla á þeim, planið við kirkjuna var tekið út sumarið eftir kosningar og er enn í hönnun. Þegar ég spurði á bæjarstjórnarfundinum nú í júlí hvort fólk væri ekki sammála því að hinir kjörnu fulltrúar bæru ábyrgð á því að það sem samþykkt væri í bæjarstjórn væri unnið, og þá að sjálfsögðu meirihlutafulltrúarnir sem hafa valdið, þá tók fólk undir það. En fólki finnst verkefnin mörg og mikið álag.   


En nú eru starfsmenn fleiri en áður í sveitarfélaginu t.d. á tæknideildinni og ég blæs á það að ástæðan sé m.a. að tæknifræðingurinn hafi komið til starfa í mars og umhverfisfulltrúinn sé hættur.

 

Það vantar skilvirkni sem lýsir sér best í því að formaður skipulags- og umhverfisnefndar kvartar sáran yfir því að nefndin fái ekki að ráðstafa þeim peningum sem á fjárhagsáætlun er heldur þurfi að bera alla hluti undir bæjarráð og helst bæjarstjórn. Nei það borgar sig ekki að veita nefndum völd það gæti reynst árangursríkara. 

 

Ég er hins vegar mjög reið yfir því að meirihlutinn vill ekki malbika göngustíginn fyrir ofan fótboltavöllinn heldur bera ofan í hann einhverja möl. Ég spyr bara er dvalarheimilisfólk á Hornbrekku afgangsstærð? Fólk sem þarf að nota göngugrind eða hjólastól getur ekki nýtt sér stíg sem er með möl. Brekkan að dvalarheimilinu er erfið og ef fólk ætlar að ganga eða fara með hjólastól er það verulegur þröskuldur á þeirra leið og nánast ómögulegt. Enda kemur þú beint niður á veg þar sem þjóðvegsumferðin fer í gegn. Það á að setja þarna malbik og laga þannig að dvalarheimilisfólk og gestir sem vilja ganga fram eftir geti gert það án þess að vera í þjóðvegsumferð og fara erfiða brekku. 

Í bili...


Harriet

Hún Harriet hefur svo sem aldrei verið hrifin af mönnum í einkennisbúningum enda fór svo þegar þeir heimsóttu hana um daginn að hún gaf þeim langt nef. Hún uppskar ljótan límmiða framan á sig sem innihélt í grófum dráttum það að hún liti nú ekki nógu vel út þessi elska.

Við Harriet fórum þá til strákanna á Múlatindi, sem eru olíusmurðir alvöru karlmenn, og fengum þá til aðstoðar við að hressa upp á sjálfsmyndina. Það gekk ljómandi vel fyrir sig og nú eru allir liðið vel smurðir og allt eins og það á að vera. Þeir áttu líka mun fallegri límmiða sem sómir sér vel á Harriet.

Í bili.........


Stuðlaættin

Við Jódís Jana fórum til Akureyrar á miðvikudaginn og áttum þar ágætis dag við að gera eiginlega ekki neitt nema drekka kakó og hafa það huggulegt með Þurý og Björgvin Mána.

Að vísu var ég að uppfæra símann minn og er komin með svaka tæki í hendurnar sem tók töluverðan tíma hjá þeim símamönnum að virkja og ekki fór betur en svo að símaskráin mín fór ekki yfir í þann nýja og þarf ég að finna leið til þess enda nenni ég ekki að skrá alla aftur.

En framundan er ættarmót Stuðlamanna og kvenna sem haldið verður að Breiðumýri í Reykjadal. Við hjónin ætlum að reyna að leggja af stað seinnipartinn í dag og höfum fengið forláta fellihýsi að láni þar sem við gistum ásamt Davíð og Jódísi Jönu.

Nú til þess að hægt sé að fara í útilegu þá þarf að baka sagði minn kæri. Ekki læt ég skora á mig oft og rifjaði því upp gamla takta í gær og bakaði vínarbrauð, snúða og skúffuköku að beiði sælkerans. Nú er bara að koma því fyrir í þar til gerðum nestisboxum þannig að allt fari ekki í klessu. Hangikjöt og grillkjöt komið á sinn stað og hitt á leiðinni.

Hlakka mikið til að sjá ættmenni mín en ég þekki afskaplega fá að ég held. En hver veit kannski uppgötva ég það að já þessi er frændi eða frænka - mikið fjör og ættarbókin verður höfð meðferðis til að tengja þetta nú allt saman.

Í bili.......


Er ég gömul?

Ja í hugum þeirra sem eru á grunnskólaaldri er ég líkast til fjörgömul. Man þegar ég var sjálf á þeim aldri þá fannst mér fólk um þrítugt nánast vera á grafarbakkanum og á ég einn tug+ við þann aldur.

Velti þessu fyrir mér eftir helgina enda mikið að gera og ekki laust við að skrokkurinn segi hvað er eiginlega í gangi. Frown Við hjónin tókum 13 tíma vakt á laugardaginn og lákum eiginlega ofan í pottinn þegar við komum heim og ekki laust við að það væri erfiðleikum háð að komast upp úr honum aftur. Sleeping

Annars var Nikulásarhelgin svipuð og oft áður, frekar kalt og sólarlítið. Held þó að ekki hafi verið eins kalt og í fyrra en öllu blautara samt.

Nú er ég á leið í vinnu aftur og síðan er ættarmót um helgina hjá Stuðla ættinni sem ég hlakka mikið til að fara á. Held að ættin hafi ekki komið saman nema þrisvar og nú eru um 200 manns búnir að skrá sig og því verður væntanlega mikið fjör.Cool

Mér sýnist Mistin mín hafa það gott í Brasilíu og þá leiðir hugurinn líka til Maine enda verður Eve mín 18 ára á morgun. GrinWizard

Í bili.....


Nú er fjör

Það er búið að vera mikið fjör á mínu heimili. Við hjónin höfum verið á fullu að klára Tröllakot ásamt tengdó og líka mikið að gera í Höllinni, erlendir ferðamenn og hópar hér í bænum að borða og skemmta sér. Smile

Nýjar myndir eru af slotinu, sem Guðný Olgu tók, sem nú er nánast fullbúið. Endilega látið alla vita um gistimöguleikann, þið sem lesið bloggið mitt, því ekki veitir af að hafa eitthvað upp í kostnaðinn.FootinMouth

Bæjarstjórnin kom og kíkti á slotið eftir bæjarstjórnarfundinn á þriðjudagskvöldið og leyst ljómandi vel á heyrðist mér.

Ég renndi á Akureyri í dag að ná í Jódísi Jönu sem var á Hólavatni þessa vikuna. Um leið keypti ég myrkvunargluggatjöld í Tröllakot sem minn kæri á eftir að setja upp.

Nú hann fór að heyja í kvöld eins og sannur bóndi en þar sem hann er ekki með orf og ljá lét hann rafmagnsorf duga og gekk ágætlega.LoL

Nikulásarmótið er að hefjast og íbúafjöldinn hér þrefaldast um helgina. Við erum búin að gera okkur klár í Höllinni til að taka á móti fólki og vonum auðvitað að bisnessinn verði góður.Grin

Í bili.....


Fyrstu gestirnir og síðustu skrefin

Já það er ekki ofsögum sagt að ýmislegt hefur gengið á þessa vikuna enda búið að leigja út Tröllakot um helgina og því ljóst að allt þyrfti að ganga upp til að svo mætti verða.

En það er einmitt þá sem allt gengur ekki upp og svo var einnig nú. Gardínustöng fyrir stofuna kom ekki að sunnan fyrr en kl. 19 í kvöld og fer því ekki upp fyrr en á morgun. En það má líka segja um skenkinn og fleira sem klárast á morgun. Whistling Veit ekki hvar við værum ef ekki væru Hildur og Jói sem hefur unnið eins og berserkur - og svo kvartar maður helmingi yngri.Woundering

Leigjendurnir eru hins vegar himinlifandi, segja þau okkur að minnsta kosti, og þykir bara sumarhúsið hið flottasta.Grin Ég var að skúra út þegar þau komu og gólfið ekki þornað þegar þau birtust á hlaðinu.

Myndir eru komnar í albúmið og á morgun þegar "flest allt" verður komið á sinn stað þá koma fleiri.Cool

En eldsnemma í fyrramálið er það svo morgunmatur fyrir 30 göngugarpa sem ætla yfir í Héðinsfjörð. Eftir vaktina mína í Höllinni á morgun ætla ég svo í fertugsafmæli til Ingva vinar míns og eiga góða kvöldstund með fínu fólki.Tounge

Í bili.........


Nokkrar myndir

Setti inn nokkrar myndir af framkvæmdunum í Tröllakoti frá því í gær. Þær eru undir myndaalbúminu og Tröllakotsmöppunni.

Tröllakot

Jæja nú er þetta allt að smella saman. Ásgeir bróðir er að skrifa heimasíðu fyrir Tröllakot og Höllina og ákváðum við að henda henni í loftið þrátt fyrir að vera ekki alveg tilbúin.

Endilega segið hvað ykkur finnst hér á blogginu mínu. Við setjum inn myndir á fimmtudaginn þegar þeir feðgar verða "búnir" með slotið. Ætlunin er að halda smá sýningu á húsinu með því að hafa "opið" og bjóða upp á eitthver góðgæti á fimmtudagskvöldið. Læt vita af því á morgun.

En hér er heimasíðan. http://www.trollakot.is/kotindex.htm


Flottur Bjössi að vanda

Sigurbjörn Þorgeirsson (mynd fengin af www.kylfingur.is)

Á fréttavef Kylfings er umfjöllun um það helsta í golfinu og þar fékk ég þessa mynd af Bjössa.

Það er ekki amalegt fyrir Golfklúbb Ólafsfjarðar að hafa svona mann innanborðs. En Bjössi var að vinna Íslandsmeistaratitil karla 35 ára og eldri þriðj árið í röð. Hann vann sannfærandi með 14 höggum og er sagður hafa sýnt jafna og flotta spilamennsku í mótinu.

Fleiri félagar úr GÓ voru að spila og má finna þá hér. 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband