Sannkölluð fundarvika framundan

Já það er ekki ofsögum sagt að þessi vika er fundarvika. Á morgun eru það foreldraviðtöl, síðan er það bæjarstjórnarfundur sem haldinn verður á Sigló. Það lítur allt út fyrir að við þurfum að fara lengri leiðina ríflega 300 km. Get ekki sagt að ég sé rosalega spennt.Frown

Annars hefur veður skánað og kannski verður Lágheiðin mokuð - vonum það besta.

Á miðvikudaginn verður svo rokið af stað til að ná flugi þar sem fjármálaráðstefnan verður í borginni á fimmtudag og föstudag. Ætla að fljúga til Akureyrar á föstudaginn og gista og fá svo far með mínum kæra heim á laugardaginn.

Af því svona er þá er víst best að nota tímann núna og halda áfram að vinna í kennsluáætlunum fyrir næstu önn.

Í bili.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Heil og sæl mín kæra. Já ég þekki þetta aðeins með hvað fötin skreppa saman með árunum .

Sjáumst hressar á fjármálaráðstefnunni, að vanda.

Herdís Sigurjónsdóttir, 10.11.2008 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband