Lang flottastir
8.2.2008 | 21:22
Mínir menn alltaf lang flottastir. Ronaldo er án efa einn besti knattspyrnu maður heims í dag. Stjórinn er líka einn sá langlífasti við stjórnum knattspyrnuliðs að ég held.
Er orðin spennt er að fara jómfrúarferð mína á Old Trafford um næstu helgi að sjá Man. Utd. - Arsenal í bikarnum. Förum út síðdegis á föstudaginn og lendum seint og síðir á mánudagskvöldið.
Tvöfalt hjá Manchester United | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Útspil menntamálaráðherra og launamál
7.2.2008 | 23:41
Menntamálaráðherra talar fjálglega um kennaralaunin þessa dagana og segir þau eiga að hækka verulega. Ég tek undir það með henni en það er svo auðvelt að tala um slíkar launahækkanir þegar maður þarf ekki að bera ábyrgð á því að borga og það segir Árni flokksbróðir hennar að standi ekki til. Það er að ríkið ætlar ekki að setja í sveitarfélögin auka fjármuni til að standa undir verulega bættum kjörum til handa kennurum.
Það hefur verið rætt frá því grunnskólarnir voru fluttir yfir til sveitafélaganna að ekki hafi fylgt því nægjanlegt fé og eiginlega ótrúlegt að sambandið hafi spilað svo rassinn úr buxunum að ekki hafi verið um endurskoðunarákvæði að ræða þar sem tekið er á fjármögnuninni.
En launamál eru víða rædd og meðal annars hér í Fjallabyggð. Meirihlutinn leggur til að bæjarstjórinn okkar fái umtalsverða hækkun á sínum launum og spurning hvort það sé fordæmisgefandi þannig að aðrir lykilstarfsmenn sveitarfélagsins fái svo vel í lagt eins og gera á við hann. Hvet fólk til að fylgjast vel með umræðunni næstu daga og endilega að mæta á bæjarstjórnarfund á þriðjudaginn kl. 17.
Menn blóta þessa dagana
1.2.2008 | 17:53
Já það er ekki ofsögum sagt að áhugi fólks á þorramatnum fer að ég held vaxandi ef eitthvað er. Tvær skipshafnir hafa verið með þorrablót hjá okkur í vikunni og í kvöld eru það Kiwanismenn.
Margir eflaust orðnir súrir þegar að þessi ósköp ganga yfir. Annars kom einn sjómaðurinn að máli við mig og sagðist ekki hafa smakkað svona góðan þorramat í að minnsta kosti 10 ár. Ég er svo skrítin með það að mér finnst þetta eins á bragðið þ.e. það sem ég legg í að smakka (sem er nú reyndar frekar lítið).
Það má því segja að vinnudagurinn hafi verið frekar langur þessa vikuna og skýli ég mér á bak við það þegar ég afsaka bloggleysið.
Annars er ég búin að vera að kljást við flensuskít í eina þrjá daga eins og líklega margir. Maður dröslast þó í vinnu þar sem heldur hefur fækkað í kennaraliðinu sökum veikinda þessa vikuna.
Í bili.....
Mannfólkið viðrað
20.1.2008 | 23:46
| ||||
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjallabyggð sigraði
19.1.2008 | 09:45
Útsvar var mjög spennandi í gær og tilþrifin fín. Ég sagði við minn kæra þegar síðasta spurningin var í loftinu - "þetta á Inga að vita" og auðvitað vissi hún þetta. Stressið er það sem fer með fólk á slíkum stundum og hún þurfti bara augnablik til þess að sækja viskuna í brunninn.
Frábært hjá þeim. Þau eru flott lið og vonandi höldum við lengi áfram enn.
Veturinn - vinnan og spurningakeppni
18.1.2008 | 20:09
Ekki þurftum við Ólafsfirðingar að kíkja til Grindavíkur til að rifja upp vetrarveður. Snjóað töluvert í dag og spáin ekkert sérstök, reyndar betra veður en maður átti von á í upphafi. Sem betur fer, finnst snjórinn ekki áhugaverður. Minn kæri er hins vegar himinlifandi enda sagðist hann loksins geta bleytt í belti á morgun - spurning hvort veður verður gott til þess. Er að vinna í bókhaldinu og launaframtalið orðið klárt. Alltaf eitthvað að gerast. Þarf að kíkja á verkefnið mitt í próffræði og raunfærnimati á morgun og klára að reikna. Ekki það sem mér þykir skemmtilegast en stundum þarf víst að gera fleira en gott þykir eins og maður segir við nemendur sína. Framundan er að horfa á Útsvar þar sem Fjallabyggð mætir Árborg. Vona að okkar fólki gangi vel. |
Skemmtilegir dagar
17.1.2008 | 19:01
Það er ekki ofsögum sagt að maður er orðinn háður tölvunni þegar kemur að vinnu. Þannig hefur háttað að tölvukerfi skólans hefur legið niðri í rúma viku þar sem netþjónninn hrundi og er ekki enn komið í samt lag. Í dag komust þó kennarar inn á sameiginleg svæði og gátu sótt sér gögn en menn vinna hörðum höndum að því að koma þessu í samt lag. Þegar svona gerist verður maður áþreifanlega var við hversu mikið maður notar tölvuna í vinnu og til samskipta.
Nú ég fór til Akureyrar á mánudag og aftur í gær þar sem ég er í starfsþjálfun/kynningu hjá Reyni ráðgjafastofu. Á stofunni starfa bæði sálfræðingar og félagsráðgjafi og hef ég fengið kynni af starfssviði beggja.
Gaman að sjá færa menn beita viðtalstækninni og spurningatækni sem ég hef verið að læra og svolítið að prófa nú þegar. Einnig áhugavert að uppgötva hvernig starf náms- og starfsráðgjafa getur tengst þeirra störfum. Verð líka með í málum á morgun og hlakka mikið til.
Á þriðjudaginn var svo bæjarstjórnarfundur á Sigló. Ekki mörg mál á dagskrá en ráðningar og innheimtumál sveitarfélagsins fengu mestan tíma í umræðunni. Hvoru tveggja ekki gott að mínu mati. Ég tel ekki að við eigum að færa sýslumanni störf við innheimtu á sama tíma og við krefjumst þess að fá störf flutt frá ríkinu til sveitarfélagsins. Öfugsnúið...
Ráðningar á skíðasvæðið á Sigló, hafnarvarðar sem og flestar þær sem hafa verið auglýstar og ráðið í hafa ekki verið unnar faglega að mínu viti.
Sigga Gunnars kynnti viðskiptahugmynd sem var mjög áhugaverð og vonandi tekst henni eins vel til og hún ætlar sér. Bíð spennt...
Komin heim
13.1.2008 | 17:57
Töluverð umræða var á meðal okkar skólasystranna og Sifjar kennara um lagafrumvörpin sem nú eru til umfjöllunar á þingi og sérstaklega varðandi lögverndun á starfsheitum. Sýnist þó að um það ætti að nást pólitísk samstaða alla vega benda umræður á þingi til þess í öllum flokkum. Eins og manni þykir nú gaman að skreppa að heiman þá er alveg dásamlegt að koma heim aftur. Ég lenti sem sagt á Akureyarflugvelli í gær um miðjan dag og skrapp í heimsókn til Gúlgu og Boga þar sem minn kæri þurfti að sjá fótboltaleik með einhverjum slugsum. Við brenndum svo heim og sáum frábæran fótboltaleik þar sem mínir menn í Man.Utd. fóru á kostum og gjörsigruðu Newcastle 6-0. Fór snemma í háttinn enda slæpt eftir borgarferðina og skólasetuna. Í dag vorum við svo boðin í skírnarveislu hjá Hildi Magg og Ingvari en litli snúðurinn þeirra fékk nafnið Guðmundur Árni. Eftir veisluna var okkur ekki stætt á öðru en að viðra hundana - nú eða okkur ef því er að skipta. Maður kjagar orðið vegna ofáts og enn bólar ekkert á heilsusamlegu líferni. Veit eiginlega ekki hvar það er að finna - alla vega er ég í mikilli afneitun og held ótrauð áfram að gúffa í mig alls kyns gúmmelaði en þrátt fyrir það gengur hægt á jólakökurnar sem að sjálfsögðu má ekki fórna heldur skal allt etið.
|
Borg óttans
11.1.2008 | 12:57
Það má víst segja það fyrir okkur landsbyggðafólkið að maður sé í borg óttans. Í nótt var ráðist á lögreglumenn í miðbænum og við Þurý að snattast þar í gærkveldi - Gvöð minn. Hittum að vísu séra Sigríði og hennar ekta maka þegar við fórum á kaffihús eftir búðarráp.
Gat eitt einhverjum krónum og keypti afmælisgjöf handa Jódísi Jönu sem er 9 ára í dag. Knús og kossar til hennar. Skil eiginlega ekki hvað árin líða fljótt - finnst ég ekki svona mörgum árum eldri en ég var víst á þeim tímapunkti. En segir líklega meira um mig en eitthvað annað.
Annars gengur námið vel - flestar farnar að tala um hvað skrifa skuli um í meistaraverkefninu og margar góðar hugmyndir komnar á loft. Svo eru einhverjar sem setja spurningamerki við að klára meistaraprófið og láta duga að fá diplómuna í vor enda nægir það fyrir starfsréttindin.
Líst ágætlega á hið nýja háskólatorg en mikið er nú samt óunnið ennþá hér og svolítið verið að færa fólk til þar sem ekki eru tilbúnar þær stofur sem búið var að úthluta - en svona er nú það.
Ætla að rápa aðeins í búðir eftir skóla í dag, heimsækja pabba og Helgu, hitta krakkana og eiga svo rólega kvöldstund - hvar er ekki ákveðið.
Í bili....
Náms- og starfsráðgjafar
8.1.2008 | 22:28
Fór í dag til Kristjáns sálfræðings hjá Reyni ráðgjafastofu en það er hluti af starfsnámi mínu í meistaranáminu í náms- og starfsráðgjöf. Ætlunin er að kynna sér vel stoðstofnun eða þjónustu sem nýtist manni í vinnu sem náms- og starfsráðgjafi. Ekki að sökum að spyrja að vel var tekið á móti mér og alltaf gaman að spjalla við góðan fagmann. Ég verð svo með þeim eitthvað á næstunni í fjölbreyttri vinnu sem ég hlakka mikið til að taka þátt í. Ég hitti Þurý eftir heimsóknina í dag en hún var einmitt hjá félagsþjónustunni á Akureyri í sömu erindagjörðum og ég. Við áttum gott spjall og þar bar einmitt á góma lögverndun starfsheitis náms- og starfsráðgjafa sem er afar brýn. Við þykjumst ætla að setja saman pistil og reyna að taka þátt í þeirri umræðu sem á sér stað meðal félagsmanna. Það væri ekki úr vegi að Þorgerður Katrín færi að svara þeim Katrínu Jakobs og Kolbrúnu fyrirspurnum sem þær settu fram 5. desember. En þær voru svona:
2. Stendur til að lögvernda starfsheiti náms- og starfsráðgjafa í því skyni að efla þessa starfsemi? Gaman að vita hvort hún sér ástæðu til þess að lögvernda starfsheitið eða hvort hver sem er geti sinnt þessu án tiltekinnar menntunar eins og verið hefur án þess að þurfa að fá undanþágu eða annað. |