Nú á að taka á því
7.3.2008 | 13:46
Á vef Lýðheilsustöðvar geta nú einstaklingar, félagar og fyrirtæki tekið þátt í því sem nefnt hefur verið Lífshlaupið. Yfirskriftin er Þín heilsa - þín skemmtun. Allir aldurshópar í boði og skráist þátttakan á sveitarfélög. Allir Fjallabyggðabúar - saman nú - einn, tveir og þrír.
Ekki það að ég búist við því að ég sjáist hér um alla byggð í ofsa hreyfingu en allt má telja með og er það ágætt fyrir slugsa eins og mig sem sett hefur hreyfinguna á "hilluna" í allt of langan tíma. Enda er að verða meira og meira til af mér og útgjöldin aukast í samræmi við það.
En á Hornafirði varð þessi fína vísa til hjá einum þátttakandanum.
Í 70 mínútur gekk ég í gær
gegndrepa, stæltur og svangur.
Ég skynjaði þá, að í flest er ég fær
ég finn ei til þreytu ?svo langt sem það nær-
enda var ekki vegurinn langur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.