Jákvætt hugarfar
2.8.2008 | 18:00
er nauðsynlegt og er Magga Blöndal þekkt fyrir að vera hláturmild kona og svei mér ef það tikkar ekki með hátíðinni á Akureyri núna. Frábær hjörtun á umferðarljósunum og vona ég að nóttin í nótt verði jafn friðsamleg og í nótt er leið.
Maggi mágur er náttúrulega frábær og ekki að spyrja að stemmingunni á Sigló. Þar er bragurinn alltaf heimilislegur enda þekkja flestir flesta eins og stundum er sagt þrátt fyrir töluverðan mannfjölda.
Geri ráð fyrir að þeim megin í Fjallabyggð sé sól eins og í Ólafsfirði.
Brosin eru óteljandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heil og sæl Bjarkey
Já og það var meira að segja líka sól í Mosó . ... en hugurinn er samt heima á Sigló. Ég er bara búin að koma heim í mýflugumynd í sumar og ætla að skreppa í eitt slíkt mýflugustopp í vikunni. En þá ætlum við systkinin að skreppa, en Jóhann bróðir er að koma heim á þriðjudaginn í 2ja daga skrepp og upplagt að bruna Norður til mömmu og pabba.
Herdís Sigurjónsdóttir, 3.8.2008 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.