Kosningahappdrætti VG - ómótstæðilegir vinningar

Má til með að segja ykkur frá hreint frábæru happadrætti sem við Vinstri græn erum með.  

Hið sívinsæla kosningahappdrætti Vinstri grænna er nú til sölu á kosningaskrifstofum og hjá frambjóðendum. Meðal vinninga er kvöldstund við taflborðið með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, golfkylfur mundaðar með Atla Gíslasyni, myndverk eftir Mireyu Samper, sjóstangaveiði með Birni Vali, á vettvangi glæps með Katrínu Jakobsdóttur ofl. ofl. Miðinn kostar 1.000 krónur.

1. Góða veislu gjöra skal ...: Ingi Rafn Hauksson veitingastjóri kennir galdurinn að baki hinu fullkomna matarboði. Fyrir fimm. 35.000 kr.

2. Betri er einn fugl í sigti ...: Siglt út á Faxaflóa til svartfuglsveiða með Sigurmari K. Albertssyni hrl. Afli fylgir í neytendaumbúðum, ásamt leyniuppskrift. Fyrir þrjá. 55.000 kr.

3. Fögur er hlíðin ...: Gisting og morgunverður í Smáratúni í Fljótshlíð í boði Arndísar S. Sigurðardóttur. Fyrir tvo. 13.000 kr.

4. Sigling um Breiðamerkurlón ...: undir leiðsögn Kristínar G. Gestsdóttur. Nesti á leiðinni. Fyrir fjóra. 30.000 kr.

5. Skák og ...: Kvöldstund við taflborðið með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Manngangur kenndur, ef þarf. Léttar, hjartastyrkjandi veitingar. 50.000 kr.

6. Skrúðsbóndinn sóttur heim ...: Skoðunarferð í Skrúð, úti fyrir Fáskrúðsfirði, í boði Magnúsar Stefánssonar. Nesti á leiðinni. Fyrir fimm. 45.000 kr.

7. Höll sumarlandsins ...: Atli Gíslason býður í Gryfjuna sína í Grímsnesinu. Gengið um grundir, golfkylfur mundaðar og grill. Fyrir átta. 50.000 kr.

8. Handgerðar ljóðalistaverkabækur eftir Birgittu Jónsdóttur. Tíu bóka sería í sérútgáfu fyrir happdrættið. 50.000 kr.

9. Upp með skóna ...: Dagsferð með Ingólfi Á. Jóhannessyni. Gengið um Suðurárbotna. Nesti og veitingar í göngulok. Fyrir fjóra. 45.000 kr.

10. Myndverk eftir Mireyu Samper. 270.000 kr.

11. Að lífið sé skjálfandi ...: Svarfaðardalur sóttur heim í boði Ingibjargar Hjartardóttur og Ragnars Stefánssonar. Kvöldverður að svarfdælskum hætti. Gisting. Fyrir fimm. 75.000 kr.

12. Um Eyjar og sund ...: Lystisigling við Vestmannaeyjar, um víkur og hella með Ragnari Óskarssyni. Léttar veitingar á leiðinni. Fyrir tvo. 20.000 kr.

13. Björn Valur Gíslason býður í sjóstangaveiði frá Ólafsfirði. Roðlaust og beinlaust grillað í ferðalok. Reiki og orku-punkta-jöfnun að hætti húsráðenda. Fyrir fimm. 75.000 kr.

14. Hver á sér fegra fjallalamb ...: Óvissuferð um N-Þingeyjarsýslu með Stefáni Rögnvaldssyni bónda. Nesti og alnorðlensk hangikjötsveisla í lokin. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

15. Pandóruboxin opnuð ...: Bragi Kristjónsson býður til sögustundar í Bókinni ehf. – fornbókaverslun. 50.000 kr.

16. Gengið á gúmmískóm ...: Sagnaferð um Lakagíga með Kára Kristjánssyni landverði. Nesti á leiðinni. Fyrir tíu. 100.000 kr.

17. Í upphafi var orðið ...: Hlynur Hallsson spreyjar vel valin slagorð á vegg. 100.000 kr.

18. Enn finnst fljót og ef til vill ormur ...: Óvissuferð um Fljótsdalshérað með Þuríði Backman. Krásir að hætti heimamanna. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

19. Fröken Reykjavík ...: Óræðar slóðir miðborgarinnar þræddar með Birnu Þórðardóttur. Hressing á leiðinni og besta lasagne norðan Modena í lokin! Fyrir sex. 60.000 kr.

20. Sú rödd var svo fögur ...: Upptaka á uppáhaldslaginu inn á geisladisk. Heiða (Ragnheiður Eiríksdóttir) og Elvar Sævarsson stjórna upptöku og spila undir. Keflvískar kaffiveitingar. 30.000 kr.

21. Siðfræðinámskeið í boði Jóhanns Björnssonar heimspekings. Léttar, spaklegar veitingar í lokin. Fyrir tíu. 50.000 kr.

22. Ári minn og kári ...:  Þór Vigfússon og Hildur Hákonardóttir bjóða á draugaslóðir í Flóanum. Draugasetrið á Stokkseyri sótt heim. Fyrir fimmtán. 67.500 kr.

23. Helgardvöl fyrir fjölskyldu í gestahúsi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Frjáls afnot af hestum, fiskibáti og öðrum afþreyingarmöguleikum, þar með talinn fjallajeppi. Í boði Steingríms J. Sigfússonar og ábúenda. 75.000 kr.

24. Um blíðan Borgarfjörð ...:  Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir býður í sumarhús sitt í Reykholtsdal. Gönguferð um Hallmundarhraun og fossbúar sóttir heim. Grillveisla í lokin. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

25. Vængjasláttur í upphæðum ...: Sagnastund með Einari Má Guðmundssyni rithöfundi. 50.000 kr.

26. Í sátt við skattmann ...: Drífa Snædal gengur frá skattframtölum fimm einstaklinga. 60.000 kr.

27. Gisting í Flatey á Breiðafirði fyrir fjölskyldu í boði Álfheiðar Ingadóttur. Kvöld- og morgunverður að Vegamótum. 65.000 kr.

28. Viðfjarðarundur og önnur austfirsk ...: Skemmtisigling frá Norðfirði með Árna Steinari Jóhannssyni og Sigríði Stefánsdóttur. Svínasteik að dönskuskotnum hætti. Gisting. Fyrir fimm. 75.000 kr.

29. Heim að Hólum ...: Dagsferð í boði Jóns Bjarnasonar á slóðir biskupa og bændahöfðingja. Köldverður að hætti Hólamanna, með ívafi frá Ströndum. Fyrir fimm. 75.000 kr.

30. Handhægur heimilisiðnaður ...: Steinunn Þóra Árnadóttir og Stefán Pálsson kenna undirstöðu barmmerkjagerðar. Eitt hundrað merki fylgja, með áletrun eða mynd að eigin vali. Kaffi og meðlæti. Fyrir fimm. 20.000 kr.

31. Á vettvangi glæps ...: Katrín Jakobsdóttir leiðir gesti um refilstigu Reykjavíkur. Veitingar að hætti háskakvenda. Fyrir átta. 50.000 kr.

32. Hott, hott ...: Hestaferð um Eyrarbakkafjörur með Ölmu Lísu Jóhannsdóttur. Óvæntar uppákomur og grillað í lokin. Fyrir fjóra. 50.000 kr.

33. Hvað er svo glatt ...: Grillveisla með öllu tilheyrandi í garðinum hjá Ögmundi Jónassyni, margrómuðum meistara grillsins. Fyrir átta. 50.000 kr.

34. Dansi, dansi dúkkan mín ...: Gleðistund með dídsjey Andreu J. 75.000 kr

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Ómótstæðilegt!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 20.4.2007 kl. 00:06

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Þetta er skemmtilegt og frábærir vinningar, en ætla að láta mér nægja að styrkja Sjálfstæðisflokkinn

Herdís Sigurjónsdóttir, 21.4.2007 kl. 18:36

3 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Þetta er freistandi - og hvar nálgast maður miða ?

23. vinningur heillar aðeins 

Halldór Sigurðsson, 22.4.2007 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband