Að gefnu tilefni

Allt er búið. Allt er breytt.

Brátt hér verður ekki neitt.

Engin lengur Orkuveita,

uppurið er vatnið heita.

Landsvirkjunin lokuð brátt.

Ljósið farið. Allt er grátt.

Húsin hrunin hér og þar,

haugarústir allsstaðar.

Fisklaust orðið Atlantshaf

allur fiskur stunginn af.

Engra banka er nú þörf,

enda á Fróni engin störf.

Fyrirtækin fyrir bí,

fæst þau opna aftur á ný.  

Hvað skal? Spyr hann hér og nú!

Hér skal byggja Atlantsbrú.

Svo vér megum Frónið flúa

fara til Norge og öll þar búa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband