Ég gef kost á mér í 2. sætið í forvali Vinstri grænna

Framundan er forval Vinstri hreyfingarinnar græns- framboðs í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar 2009. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 2. sæti í þessu forvali sem félagsmönnum VG er heimilt að taka þátt í. Mér þykir því við hæfi að kynna mig örlítið og það helsta sem ég hef tekið mér fyrir hendur í pólitík og öðrum störfum.

Ég hef verið virk í störfum Vinstri grænna nánast frá stofnun, sit í stjórn svæðisfélags VG í Fjallabyggð, var formaður kjördæmisráðs VG í Norðausturkjördæmi en er nú gjaldkeri og sit einnig í stjórn VG. Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar vorið 2006 sat ég í miðlægri kjörstjórn VG sem sá m.a. um flesta sameiginlegu þætti kosninganna. Slík kjörstjórn er einnig starfandi nú fyrir komandi alþingiskosningar og á ég sæti í henni.

Ég sat í tvígang á Alþingi kjörtímabilið 2004-2007 sem varamaður Steingríms J. Sigfússonar. Ég lagði m.a. fram þingsályktunartillögu um stuðning við einstæðra foreldra í námi, beitti mér fyrir flutningi verkefna Þjóðskrár út á landsbyggðina, ræddi rekstrarvanda Heilbrigðisstofnunar Austurlands, er meðflutningsmaður nokkurra þingmála t.d. um styrki til foreldra sem ættleiða börn frá útlöndum og um íslenska táknmálið. Auk þess hef ég látið mig varða geðheilbrigðismál barna og ungmenna og stefnu í málefnum barna almennt, lengingu flugbrautarinnar á Akureyri og aðstöðu farþega á Egilsstaðaflugvelli.

Ég tel mikilvægt í komandi kosningum að horfið verði frá þeirri einkav.æðingu sem  ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur staðið fyrir og aukið hefur á ójöfnuð í samfélaginu. Ég vil sjá öflugt heilbrigðiskerfi fyrir alla landsmenn óháð efnahag og atvinnulífið þarf að vera fjölbreytt og taka mið af hagsmunum komandi kynslóða. Ljóst er að á þessum tíma þarf að styðja við allar menntunarstofnanir og færa sem næst notendum. Leggja þarf sérstaka áherslu á stuðning við atvinnulausa t.d. í gegnum símenntunarmiðstöðvar. Ég vil tryggja að undirstöðuatvinnuvegunum, sjávarútvegi og landbúnaði verði veitt viðunandi starfsskilyrði sem og hinni ört vaxandi ferðaþjónustu.

Ég sit í bæjarstjórn Fjallabyggðar og hef tekið virkan þátt í sveitarstjórnarmálum í 16 ár. Vegna þeirrar reynslu veit ég að efla þarf sveitarstjórnarstigið í landinu með réttlátri tekjuskiptingu þannig að sveitarfélögin geti staðið við þær skuldbindingar sem þeim ber að gera. Til þessara starfa vil ég gefa kost á mér með góðu fólki í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði.

Ég fæddist í Reykjavík árið 1965, elst þriggja systkina, ólst upp á Siglufirði til 15 ára aldurs en flutti þá til Ólafsfjarðar og hef verið þar meira og minna síðan. Foreldar mínir eru Gunnar Ásgeirsson vélstjóri, Siglfirðingur sem rekur ætt sína að Stuðlum í Reyðarfirði og í Fljótin og Klara Björnsdóttir verkakona frá Akureyri. 
Ég bý í Ólafsfirði, í nýsameinuðu sveitarfélagi sem heitir nú Fjallabyggð, með maka mínum Helga Jóhannssyni, þjónustustjóra Sparisjóðs Ólafsfjarðar. Börnin eru þrjú Tímon Davíð 26 ára, Klara Mist 21 árs og Jódís Jana 10 ára. 

Ég var við fjarnám við Verkmenntaskólann á Akureyri og lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands vorið 2005 og náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands s.l. vor.

Eins og gengur hef ég tekið mér ýmislegt fyrir hendur í atvinnu. Byrjaði ung að vinna í fiski, vann við bókhald í 16 ár, rak fyrirtæki sem framleiddi hljóðsnældur, er í dag kennari og náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Ólafsfjarðar og rek í veitingastað í Ólafsfirði ásamt mágkonu minni.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta kalla ég glæsilegur ferill, og gangi þér vel með framhaldið

Ókunnug (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 16:55

2 Smámynd: Aldís Gunnarsdóttir

Frábært hjá þér...Jórunn Einarsdóttir (Vestmannaeyjum) ætlar að gefa kost á sér í annað sætið fyrir suðurkjördæmi...

Gangi þér...áfram VG

Aldís Gunnarsdóttir, 13.2.2009 kl. 21:14

3 identicon

Stórkostlegt Bjarkey....Styð þig heilshugar...

kv. frambjóðandi í forvali í Reykjavík :)

Gunnar Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.2.2009 kl. 11:33

4 Smámynd: Aldís Gunnarsdóttir

þetta átti að vera gangi þér vel!

áfram VG...

p.s. það er fréttatilkynning á mínu bloggi frá Jórunni Einarsdóttur, suðurkjördæmi.

Aldís Gunnarsdóttir, 16.2.2009 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband