Netlögga??

Þetta er akkúrat hluti af því sem Steingrímur Joð var að tala um þegar hann talaði um netlöggu. Svona efni er nefnilega ekki fjarlægt af vefum ef ekki er um þá rætt af almenningi og kemur ekki til kasta lögreglunnar heldur ef enginn mótmælir slíkum viðbjóði.

Þetta er aðhald sem við sem við almennir netnotendur verðum að sýna og í framhaldinu fá málin væntanlega eðlilega meðferð í kerfinu.


mbl.is Nauðgunarleikur fjarlægður af íslenskri vefsíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Tek undir þetta og það er okkar skylda sem teljum okkur ábyrga netnotendur að benda lögreglunni og öðrum málsaðilum á svona óþverra.

Jón Halldór Guðmundsson, 26.5.2007 kl. 10:18

2 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Heyrðu, ég er með lausnina.

Slökkvum á internetinu, ef við getum ekki haft áhrif á það að slökkt verði á því í heiminum. Þá er spurning hvort við ættum ekki bara að saga á kaplana sem liggja frá Íslandi og í framhaldinu koma í veg fyrir allan þennan ósóma.

Það er ekki netið sem fremur glæpi, það er fólk sem gerir það. Morð, nauðganir og misnotkun, byrjaði fólk ekki á eftir að internetið varð til, heldur löngu áður, og þó....... var ekki forstöðumaðurinn í Breiðuvík með svaðalega internet tengingu, annars hefði hann varla misnotað strákana þar, eins og hann gerði.

Hann hlýtur að hafa séð þetta á netinu, og hermt eftir !!!  kemur ekki annað til grein !!!

Núna er hópurinn "Siðapostular Íslands" í annað skiptið að reyna að bjarga heiminum.

Í fyrra skiptið var það þegar klámmyndaráðstefnu átti að halda. Ætli það séu komnar tölur frá þeim siðapostulum um það hversu mörgum konum var bjargað frá mansali og börnum frá misnotkun, vegna þess að ráðstefnan var blásin af ?  getur verið að þetta hafi hrist uppí alþjóðasamfélaginu ?   ..... NEI er svarið.

Nú erum við komin með svipað upphlaup í sambandi við þennan leik, og hvað gerist svo í framhaldinu ? Verða konur í miðborg Reykjavíkur öruggari einar á næturnar, eftir að leikurinn er kominn af íslenskri heimasíðu ? Getur verið að þessi aðgerð hafi orðið til þess að misnotkun á börnum minnki verulega ?

Í sambandi við að benda lögreglunni á eitthvað, þá er 99,99% af ofstækisfullu efni geymt erlendis, þó svo að þessi leikur hafi verið inná þessari heimasíðu, þá er ekki þarmeð sagt að leikurinn í heild sinni hafi legið inná heimasíðunni, heldur eingöngu torrent linkur á hann.

Gaman verður að sjá hvað næsta 2 daga upphlaup verður, og hvort það verði vænlegra til árangurs gegn mansali, en þessi síðustu 2 upphlaup.....

Ingólfur Þór Guðmundsson, 26.5.2007 kl. 11:02

3 identicon

Ég er búinn að finna staðinn þar sem slökkt er á internetinu :)

 http://www.turnofftheinternet.com/

Lampaskuggi (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 13:06

4 Smámynd: Sigurjón

Má ég benda á alla ofbeldis- og morðleikina sem seldir eru í verzlunum til unglinga?  Er það allt í lagi?  Allar hugmyndir um netlögreglu í þeim tilgangi að koma í veg fyrir hitt og þetta, eru í bezta falli hlægilegar og í versta falli stórhættulegar almennum borgurum landsins.

Sigurjón, 26.5.2007 kl. 13:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband