Styrkur til atvinnulausra kvenna

Kvenréttindafélag Íslands

Mér finnst ástæða til að vekja athygli á þessum styrk sérstaklega þegar horft er til þess að ótrúlegur fjöldi kvenna hér í Ólafsfirði hefur stundað fjarnám undanfarin ár, bæði á framhaldsskólastigi og háskólastigi. Nú þegar framhaldsskólinn fer af stað hér í haust er tilvalið fyrir þær sem á þurfa að halda að nýta sér réttinn og sækja um.

Menningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum vegna ársins 2009. Að þessu sinni er sjóðurinn opinn fyrir umsóknum frá atvinnulausum konum 50 ára og eldri sem hófu nám eða hyggjast hefja nám á árinu 2009.

Um getur verið að ræða háskólanám, nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða nám á styttri starfsbrautum og verknámsbrautum. Styrkupphæð árið 2009 er ein milljón króna og áskilur stjórn sjóðsins sér rétt til að ákveða fjölda styrkþega. Styrkur verður greiddur út þegar staðfesting á skólavist liggur fyrir. Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:
  • Skattaskýrsla fyrir árið 2008
  • Staðfesting frá Vinnumálastofnun um atvinnuleysi
  • Staðfesting á skólavist (ef hún liggur fyrir)
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Kvenréttindafélags Íslands: www.krfi.is. Í umsókn skulu koma fram helstu upplýsingar um umsækjanda og aðstæður hans, hvaða skóla sótt er um og hvaða nám umsækjandi hyggst stunda.

Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Tilkynnt verður um styrkþega á kvenréttindadaginn 19. júní. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu KRFÍ og á netfanginu: krfi@krfi.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband