Framhaldsskóli í Fjallabyggð

Jæja þá er draumur okkar margra að verða að veruleika. Undirritun um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð fer fram á mánudaginn í Tjarnarborg kl. 11:30.

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðstýra, mun þar skrifa undir ásamt Þóri bæjarstjóra í Fjallabyggð og Svanfríði bæjarstjóra Dalvíkurbyggðar (fh. Hérðasnefndar Eyjafjarðar).

Fólk er hvatt til að vera viðstatt undirskriftina.

Þá er loks að sjá fyrir endann á þessu langþráða máli sem fyrrum menntamálaráðherra þeirra Sjálfstæðismanna var búin að draga lappirnar með og setja ofan í skúffu.

Ég er viss um að þetta kemur til með að hafa gífurleg áhrif á okkar litla samfélag. Það skiptir miklu máli, á allan hátt, að hafa unga fólkið heima lengur og hafa það virkt í samfélaginu. Auk allra annarra áhrifa sem því fylgir að reisa slíkan skóla.

Ég hlakka til að taka þátt í þessu uppbyggingarstarfi sem framundan er.

Í bili.........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband