Jákvætt hugarfar

er nauðsynlegt og er Magga Blöndal þekkt fyrir að vera hláturmild kona og svei mér ef það tikkar ekki með hátíðinni á Akureyri núna. Frábær hjörtun á umferðarljósunum og vona ég að nóttin í nótt verði jafn friðsamleg og í nótt er leið.

Maggi mágur er náttúrulega frábær og ekki að spyrja að stemmingunni á Sigló. Þar er bragurinn alltaf heimilislegur enda þekkja flestir flesta eins og stundum er sagt þrátt fyrir töluverðan mannfjölda.

Geri ráð fyrir að þeim megin í Fjallabyggð sé sól eins og í Ólafsfirði.


mbl.is „Brosin eru óteljandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Heil og sæl Bjarkey

Já og það var meira að segja líka sól í Mosó . ... en hugurinn er samt heima á Sigló. Ég er bara búin að koma heim í mýflugumynd í sumar og ætla að skreppa í eitt slíkt mýflugustopp í vikunni. En þá ætlum við systkinin að skreppa, en Jóhann bróðir er að koma heim á þriðjudaginn í 2ja daga skrepp og upplagt að bruna Norður til mömmu og pabba.

Herdís Sigurjónsdóttir, 3.8.2008 kl. 14:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband