Enn á leið í borgina

Þetta fer að verða spurning um að kaupa sér húsnæði í borginni svo örar eru ferðinar. Febrúar hefur verið undirlagður í fundum og skóla þannig að nú eru allir "limir" fjölskyldunnar að verða búnir að fá nóg af þessu útstáelsi frúarinnar.

En seinni hluti aldurstölu minnar hafði breyst úr 2 í 3 þegar ég opnaði augun í morgun. Alveg merkilegt hvernig svona hlutir geta gerst á meðan maður sefur.Sleeping

En ég sem sagt er á leið í síðustu staðlotu vetrarins og kem heim á laugardaginn svona til að muna hvernig fólkið mitt lítur út. Fer svo aftur á mánudaginn í Háskólann á Akureyri og verð þar á þriðjudaginn líka í starfsþjálfun.

Af þessu sökum hef ég flýtt foreldra/nemenda samtölum hjá mér og byrjaði í gær og klára í dag.

Í bili....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þa'.

Bjarkey (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband