Flokksráðsfundur og sveitarstjórnarráðstefna

Var á fínum fundi með flokksfélögum mínum um helgina. Fyrst var það örstjórnarfundur og flokksráðsfundur sem var mjög fínn og ræðan hennar Kötu frábær. Hún velti fyrir sér farsanum í borginni og kallaði hann raunveruleikasjónvarp auk þess að ræða skuggahliðar kapitalismans.

Launamálin voru helsta umræðuefnið hjá mjög mörgum bæði á flokksráðsfundinum og líka á sveitarstjórnarfundinum á laugardeginum enda framsögumenn þar Eiríkur Jónsson, KÍ og Gunnar Rafn Sigurbjörnsson formaður launanefndar sveitarfélaga.

Nokkrar ályktanir voru samþykktar m.a. um efnahags- og atvinnumál, heilbrigðismál, kjaramál og um sjávarútveg og mótvægisaðgerðir.

Hvet ykkur til að kíkja á þær og taka þátt í umræðunni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Takk fyrir síðast kæra frænka og fyrir frábæran fund. Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 25.2.2008 kl. 15:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband