Fundur með samgöngunefnd og vel heppnaður íbúafundur

Dagurinn byrjaði á því að minn kæri fór með bílinn í dekkjaskipti þar sem ég þurfti að fara til Siglufjarðar í starfsþjálfun og snjór á Lágheiðinni. Var komin þangað um kl. 12:30 og var til kl. 15 þegar ég stökk á fund með samgöngunefnd.

Sú nefnd tók vel í óskalista bæjarstjórnar Fjallabyggðar og gerir líklega allt sem hún getur til að uppfylla óskir sem flestra bæjar- og sveitarstjórna þessa dagana.

Um kvöldið var svo íbúafundur og var mætingin hreint frábær á þriðjahundrað manns og fín stemming. Vona að Ólafsfirðingar verði jafn duglegir að mæta í kvöld og taka þátt eins og vesturbæingarnir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarkey Gunnarsdóttir

Blessuð Álfhildur.

Ekki var það nú alveg svo auðvelt. Er á leið á Sauðárkrók í fyrramálið, Sigló á mánudaginn og Blönduós miðvikudaginn þar á eftir. En það hefði getað verið verra. Pollýanna

Bjarkey Gunnarsdóttir, 18.9.2007 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband