Meðgjöf í Ólafsfirði

Gat ekki annað en glaðst yfir því að forseti bæjarstjórnar Fjallabyggðar skyldi segja frá því í fréttum sjónvarpsins áðan að bærinn hyggðist bjóða þeim sem byggja vildu íbúðarhús í Ólafsfirði meðgjöf uppá 500.000 þús. þ.e. með því að lækka lóðaverð.

Helgi minn lagði það nefnilega til á fundi skipulags- og umhverfisnefndar um daginn að þetta yrði gert og samþykkti nefndin það. Ekki treysti þó formaður bæjarráðs sér til að taka málið fyrir á bæjarráðsfundi daginn eftir þar sem hún hafði ekki rætt málið í sínum hóp. Skil það reyndar vel en á sama tíma fór formaður nefndarinnar í útvarpið og tjáði sig um málið - þurfti greinilega ekki að ræða við sitt fólk.

En þetta er það sem fyrrverandi meirihluti bauð uppá og ekki spurning að verið er að taka rétta ákvörðun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband